Sunday, May 15, 2005

Too long ?

jæja, meira en mánuður síðan ég bloggaði seinast, en það les þetta engin þannig það er í lagi :)

Ég og Guðrún fórum til Köben í seinasta mánuði, fékk mér KFC sem olli vonbrigðum, glötuð BBQ sósa með ekki nærri því eins góð og á íslandi. En fórum um kvöldið á Hard Rock Café og ég fékk mér RISA nachos rétt....hmmmmm nammi namm.

Svo skilaði ég og hópurinn inn fyrsta annarverkefninu fengum 9 fyrir það sem er besta mál. En núna er komið að verkefni tvö........:P

Annars fór ég á Fredagsbarinn í skólanum á föstudaginn sem var mjög gaman og bjórinn kostaði 60 kr. Íslenskar. Ég byrjaði um hádegið og svo kom Guðrún um hálf fjögur, svo var okkur boðið heim til Dan bekkjarfélaga míns og kærustu hans við keyptum kassa af bjór á frábæru verðið af Fredagsbarnum sem við tókum með okkur :), þar var drukkið öl og fengum svo mat . Við vorum kominn heim um ellefu hálf tólf, við sofnuðum strax fyrir framan sjónvarpið.
Þannig laugardagurinn var þynnkudagur og lítið gert.

En þangað til næst...
Tjörvi