Monday, November 21, 2005

Hvítar rendur!

Fór á White stripes í gær, var ágætlega sáttur samt ekki 100%, vantaði stemmningu svo var þetta ekki nógu þétt fannst mér. Jack fór frjálslega með lögin, oft flott en oft ekki flott og Meg er ekki besti trommarinn en samt skilaði sínu ágætlega.

Annars er maður á fullu að klára öll verkefninn sem eru eftir áður en skólinn klárast, og svo eftir það er að vinna eins og Mad-man til jóla og þá éta á sig gat.
Ég veit að það er búið að klukka mig fyrir um það bil 2 mánuðum og læt ég nú verð að því að mæta þeirri "klukkun"

5 tilgangslausar upplýsingar um mig.

1. Ég er háður því að spila á gítar.
2. Ég þoli ekki að vaska upp.
3. Ég er ekki með bílpróf.
4. Leiðinlegast sem ég veit er að raka mig.
5. Ég fæddist með hár niður á axlir! (!?Rock God?!)

Kveð í bili