Sunday, November 21, 2004

Með 38 stiga hita :(

Þá er maður kominn með hita. Ætlar mér að gera gott úr þessum veikindum og byrja að læra fyrir spænsku prófið sem er á miðvikudaginn.

Kom heim eftir vinnu í gær og var byrjaður að borða "Chilli Chicken la Tjörvi" pitsuna mína, náði að borða eina sneið þá hringdu tveir hressir piltar, Andri og Arnar Snær, í mig um 22:45 og grátbáðu mig um að kíkja á þá á Glaumbar. Labbaði niðri bæ og mætti á Glaumbar, fékk 2 bjóra og eitt "Logandi Sambuka" á 11 mín. í boði Arnars og Andra, þeir voru vel í glasi og ætluð sko að sjá til þess að ég myndi ná þeim tveim. En ég afþakkaði öll boð um fleiri skot, maður er greinilega að verða gamall. Kíktum á Kofa Tómasar frænda, Andri og Arnar stjórnuðu playlistanum hjá plötusnúðnum í góðan hálftíma en þá sagði hann við þyrftum að kaupa á barnum ef við ætluðum að fá fleiri óskalög! skrítið, en virkaði því Arnar splæsti bjór. En dúndur tónlist allan tímann. Fór svo á Celtic Cross og hitti engan annan en Hafbar Helgason, þann mikla tónlistakennara og harmonikku spilara, kíkti með Haffa og félögum á Ara í Ögri, stoppaði stutt við en fór svo á vegamót að hitta Arnar, en hitti í raun ekki Arnar heldur gat ég horft á hann og hans fyrrverandi spjalla, á þeim tímapunkti var ákveðið að ég skildi fara heim. Labbaði heim.

Ég held að labbi túrarnir hjá mér, í og úr bænum, hafi ollið þessum hita sem ég er kominn með. Var búin að vera slappur alla vikuna og ætlaði að taka því rólega í gær. Skrítið hvernig öll plön breytast oft.
Arnar og Andri ! Takk fyrir mig!

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hey.. ég var líka þarna í rífandi stuði í gær....:D:D:D en þið strákar eruð samt ótrúlega góðir í að koma mér í gott skap þegar ég er búin að vera pirruð á því að finna stæði fyrir bílinn...allaveganna þá fann ég þessa síðu á GASS.... og þú mannst að ég ætla að koma að vinna á Dominos og rústa Hörpu...hihi:D See ya later dude.. ESTER

10:36 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hey.. ég var líka þarna í rífandi stuði í gær....:D:D:D en þið strákar eruð samt ótrúlega góðir í að koma mér í gott skap þegar ég er búin að vera pirruð á því að finna stæði fyrir bílinn...allaveganna þá fann ég þessa síðu á GASS.... og þú mannst að ég ætla að koma að vinna á Dominos og rústa Hörpu...hihi:D See ya later dude.. ESTER

10:36 PM  
Anonymous Anonymous said...

oooops...þetta gerðist soldið oft.... verður að hafa það!!!!!!!:D:D:D
ESTER

10:49 PM  

Post a Comment

<< Home